Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hefja viðræður í Hveragerði

Formlegar viðræður Sjálfstæðisflokksins og S-lista Samfylkingar og óháðra eru hafnar í Hveragerði. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í gær og er fyrsti fundurinn um mögulegt meirihlutasamstarf á dagskrá á mánudaginn.María Rún Þorsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokki, staðfesti þetta við fréttastofu. Hún segir að helgin verði notuð í að ræða við sitt bakland um komandi viðræður. Málefnalegur grundvöllur flokkanna sé góður og væntir María þess að þetta muni ganga vel.Nýr meirihluti er í burðarliðnum í HveragerðiRÚV / Ragnar Visage
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hefja viðræður í Hveragerði
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd