Gamla fréttin: „Nýr“ Páll Pálsson fyrir 180—200 milljónir
Mestu viðbrigðin eru þegar skipið er keyrt á móti sjó og vindi, — það heggur ekki eins mikið og heldur og heldur betri ferð. Þá er komin önnur og betri útfærsla á veiðarfæradekkinu og síðast en ekki síst má nefna, að orkusparnaðurinn er verulegur, þrátt fyrir að skipið sé orðið stærra og aflmeira,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri á togaranum Páli Pálssyni ÍS, í Fiskifréttum 28. október 1988 um endurbætur á skipinu í Póllandi.