ALDOUS HARDING, H. HAWKLINE – VENUS IN THE ZINNIA Lagið Vensu in the Zinnia er á fimmtu hljóðversplötu nýsjálensku skrítnipoppstjörnunar Aldous Harding. Platan kom út 8. maí og fær frábæra dóma í popppressunni og er sem stendur með 87/100 á Metacritic sem lofar góðu. THE STROKES – FALLING OUT OF LOVE Frá Nýja-Sjálandi liggur leiðin til New York þar sem við hittum fyrir eilífðartöffarana í The Strokes sem eru að nostra við ræturnar. Lag þeirra Going Shopping hefur verið að slá í gegn og þá er tímabært að senda út annað sem er vangalagið Falling out of Love. Lögin eru bæði á væntanlegri sjöundu plötu sveitarinnar sem er pródúseruð af meistara Rick Rubin og kemur í lok júní. ROSTAM – BACK OF A TRUCK Tónlistarmaðurinn og framleiðandinn Rostam (Batmanglij) er einn af stofnendum Vampire W