Fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni í íslenska skólakerfinu hefur rýrnað verulega á tuttugu árum, segir Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, sem afhenti menntamálaráðherra skýrslu í gær.Íris ræddi stöðu námsefnis í íslenskum skólum á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag.„Þetta er vanrækt stoð sem hefur einhvern veginn flogið undir radarinn og lítið verið sett í samhengi við þau áhrif sem vanrækslan hefur haft.“Hún segir að auka þurfi gerð námsgagna og tryggja jafnt aðgengi að þeim. ÁTTI AÐ AUKA FRAMLÖG EN GLEYMDIST Í HRUNINU „Núna er staðan þannig að við erum með 39 prósent af því fjármagni inni í kerfinu af því sem var 2007 þegar kerfið var sett á laggirnar. Það átti að tvöfalda það fjármagn árin á eftir en það kom efnahagshrun í millitíðinni og það gleymdist. Í