Forstjóri Íslandshótela gerir ráð fyrir að allt starfsfólk Hilton Nordica og Natura-hótelanna verði ráðið til Íslandshótela, sem hafa gert leigusamning um húsnæðið við Reiti. Starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna, sem eru í eigu Berjaya, var tilkynnt í gær að því yrði öllu sagt upp í næstu viku.„Við erum ekki beint að taka yfir reksturinn heldur er leigusamningurinn við Berjaya runninn út og við erum með nýjan leigusamning við Reiti, sem eiga fasteignirnar, og munum hefja þarna okkar rekstur 1. september,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.„Við munum að sjálfsögðu koma fram af virðingu við þetta starfsfólk, margt hvert búið að vinna þarna mjög lengi þannig ða öllu þessu fólki verður boðið að koma í samtal við okkur og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða þett