Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki velkomin

Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, er einn reynslumesti og vinsælasti rappari landsins. Hann steig fyrst fram með breiðskífunni Bara ég árið 2011 og hefur síðan þá gefið út ótal smelli en hann gerir sér einnig grein fyrir mikilvægi þess að halda sér á jörðinni og væntingum í hófi.Gauti var gestur Júlíu Margrétar Einarsdóttur í þættinum Að morgni á Rás 2 og fór yfir ferilinn og sagði frá stórtónleikum í lok maí því stærsta plata hans, Vagg&Velta, á tíu ára afmæli. VILL EKKI GERA LÍTIÐ ÚR FORTÍÐINNI Gauti segist hafa þroskast mikið sem tónlistarmaður, þá sérstaklega þegar kemur að textasmíðum. Þegar hann horfi til baka á plötuna Vagg&Velta finnist honum sumir textarnir vera frábærir á meðan aðrir séu hræðilegir. „Hvernig nennti ég að segja svona einfalda hluti sem þýða
Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki velkomin
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd