Fagna fjölgun hermanna í Póllandi

Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, þakkaði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í dag fyrir tilkynningu hans um að bandarískum hermönnum í Póllandi yrði fjölgað um 5.000. Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, fagnaði yfirlýsingunni líka. Bandaríkjamenn höfðu áður sagt að þeir væru hættir við að senda 4.000 hermenn til Póllands. Það var túlkað sem viðbrögð Trumps við of litlum varnarviðbúnaði Evrópuríkja. Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands.EPA / MARCIN BIELECKI
Fagna fjölgun hermanna í Póllandi
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd