Tveggja ára stúlka lést úr hitaslagi eftir að faðir hennar gleymdi henni í bíl

Tveggja ára stúlka lést eftir að hafa fengið hitaslag á Galiciu-héraði á norðvestur Spáni á miðvikudag. Faðir stúlkunnar gleymdi henni óvart í bíl sínum þegar hann fór til vinnu samkvæmt frétt The Guardian. Hann hafði keyrt eldri börn í skólann en á leið sinni á leikskólann með stúlkuna fékk hann símtal sem truflaði hann við aksturinn. Faðirinn keyrði því beint til vinnu án þess að koma við á leikskólanum og gleymdi stúlkunni í bílnum.Þegar móðir stúlkunnar ætlaði að sækja hana kom í ljós að hún var ekki þar en þegar upp komst var það of seint. Stúlkan lést úr hitaslagi eftir að hafa verið í bílnum í margar klukkustundir. Bæjaryfirvöld í Brión hafa lýst yfir tveggja daga sorg vegna stúlkunnar og hennar verður minnst með mínútu þögn í bænum í dag. Lögregluyfirvöld rannsaka málið.Miklir hita
Tveggja ára stúlka lést úr hitaslagi eftir að faðir hennar gleymdi henni í bíl
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd