300 sagt upp á tveimur hótelum

Starfsfólki Hilton Nordica og Hilton Natura-hótelanna var tilkynnt í gær að því yrði sagt upp í næstu viku, í lok mánaðarins. Hótelin eru í eigu Berjaya en fyrirtækið hefur samið um sölu þeirra. Íslandshótel.Vísir greindi frá því í gær að starfsfólki hefði verið tilkynnt um yfirvofandi uppsagnir, starfsfólk á minnst öðru hótelinu var boðað til fundar í gær. Annar fundur hefur verið boðaður með starfsfólki í dag. Starfsfólk sem fréttamenn Vísis ræddu við lýsti óvissu um framtíð sína og sagði að þrátt fyrir yfirlýsingar opinberlega um að nýr eigandi yfirtæki ráðningarsamninga hefði ekkert verið rætt við það.Hilton Natura sem áður hét Reykjavík Natura og þar áður Hótel Loftleiðir.RÚV / Þórgunnur Oddsdóttir
300 sagt upp á tveimur hótelum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd