Í hartnær tvo áratugi hefur fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni fyrir íslenskt skólakerfi rýrnað verulega og eru áhrif þess mælanleg. Námsárangur barna fer síversnandi, munur á námsárangri milli sveitarfélaga eykst og félagslegur bakgrunnur barna er farinn að hafa meiri áhrif á árangur í námi.