Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að senda 5.000 hermenn til Póllands, samkvæmt færslu sem hann birti á Truth Social í gærkvöld. Hann sagði ákvörðunina tilkomna vegna tengsla hans við forseta Póllands, Karol Nawrocki, sem hann hefði stutt í forsetakosningunum á síðasta ári.Bandaríkjaforseti útskýrði ákvörðunina ekki frekar. JD Vance sagði á þriðjdag að ákvörðun hefði verið tekin um að bíða með að senda 4.000 bandaríska hermenn til Póllands.Trump hefur talað um að fækka hermönnum í Evrópu. Bæði Trump og Vance hafa sagt að Evrópuþjóðir verði að axla aukna ábyrgð á eigin öryggi. Trump sagði í byrjun maí að Bandaríkin ætluðu að fækka um 5.000 hermenn í Þýskalandi. Ekki liggur fyrir hvort hermennirnir verði fluttir frá Þýskalandi til Póllands eða hvort um aðra hermenn er að ræða sem fara til