Níu særðust í árásum Ísraelshers í Líbanon í gær, samkvæmt líbanska heilbrigðisráðuneytinu. Sjúkrahús í Suður-Líbanon eyðilagðist að hluta og sjúkrabílar sem voru við sjúkrahúsið. Sjö þeirra sem slösuðust starfa á sjúkrahúsinu.16 sjúkrahús hafa orðið fyrir árásum síðan stríðið hófst 2. mars og þá hafa 116 bráðaliðar og heilbrigðisstarfsmenn verið drepnir í árásum Ísraela.Árásir hafa haldið áfram milli Hezbollah og Ísraela þrátt fyrir vopnahlé sem samið var um og tók gildi 17. apríl. Vopnahléið var framlengt um 45 daga í síðustu viku eftir samningaviðræður milli fulltrúa Ísraels og Líbanons í Washington. Hezbollah-samtökin eru þó mótfallin þessum samningaviðræðum.Bandaríkin settu refsiaðgerðir á níu einstaklinga sem tengjast Hezbollah í gær fyrir að standa í vegi fyrir friði í Líbanon. Líba