SÞ: Eining um skyldur ríkja til að verja fólk og umhverfi gegn loftslagsvá

„Ég fagna ályktun allsherjarþingsins um að gera ráðgefandi úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag um loftslagsbreytingar að sínum," sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær, eftir að 141 aðildarríki samtakanna samþykkti tillögu Kyrrahafseyríkisins Vanúatú þar að lútandi. Hann sagði þetta kröftuga áréttingu á gildi alþjóðalaga, loftslagsréttlætis og -vísinda, og skyldu ríkja heims til að verja fólk fyrir afleiðingum æ alvarlegri loftslagsvá. „Þau sem minnsta ábyrgð bera á loftslagsbreytingunum gjalda þær dýrustu verði," sagði Guterres, „og því óréttlæti verður að linna.“Hlusta má á umfjöllun Spegilsins um þetta hér að neðan eða lesa hana áfram þar fyrir neðan.Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktaði að ríkjum heims beri að hlíta
SÞ: Eining um skyldur ríkja til að verja fólk og umhverfi gegn loftslagsvá
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd