Skora á stöndug fyrirtæki að lækka verð um 10%

Ísland er orðið dýrasta land í heimi, segir Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku stéttarfélags, og skorar á stöndug fyrirtæki að lækka verð um 10%. Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ekki svigrúm til slíkra lækkana. Rætt var við Vilhjálm og Pétur í Kastljósi í kvöld.Viska metur sem svo að árið 2026 sé verðlag á Íslandi 84% yfir meðaltali Evrópulandanna, sem sé sögulegt met til þrjátíu ára. Meðalverðmunur á því tímabili er rúm 40%.Vilhjálmur segir að þó að það sé eðlilegt að verðlag haldist í hendur við laun sé verðmunur Íslands og Norðurlandanna tvöfaldur á við launamuninn. Laun skýri því ekki alla dýrtíð heldur séu fákeppni, tollar og fleiri þættir sem spili inn í.Samkvæmt tölum Visku greiða Íslendingar að meðaltali 40% hærra verð fyrir bifreiðar og 70% hærra
Skora á stöndug fyrirtæki að lækka verð um 10%
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd