Kveikt í sjúkratjöldum þar sem ebólusmitaðir eru meðhöndlaðir

Hópur fólks kveikti í sjúkratjöldum fyrir utan sjúkrahús í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í dag. Fólkið mótmælti því að fjölskyldu og vinum ungs manns, sem er talinn hafa látist úr ebóluveirunni, hafi verið meinað að jarða lík hans.Fólkið kastaði hlutum að sjúkrahúsinu Rwampara, sem er staðsett nálægt borginni Bunia í Ituri-héraði í Kongó, og kveikti í tjöldum sem notuð voru til að einangra smitaða. Þetta segir stjórnmálamaðurinn Luc Malembe Malembe við breska ríkisútvarpið BBC.Lík ebólufórnarlambs er mjög smitandi og yfirvöld þurfa að tryggja örugga greftrun til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Ebóla hefur orðið meira en 130 manns að bana í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó.Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með „öruggum og virðulegum útförum“ fyrir fó
Kveikt í sjúkratjöldum þar sem ebólusmitaðir eru meðhöndlaðir
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd