„Þetta var nú ekki svo mikill skellur, húsið skemmdist alla vega ekki neitt, gamalt múrsteinshús í Hellerup sem pabbi minn fæddist í fyrir 99 árum,“ segir Jórunn Rothenborg leiðsögumaður í samtali við mbl.is um 3,9 stiga jarðskjálfta í Kaupmannahöfn í gær sem fjöldi Íslendinga fann fyrir.