Fer tvennum sögum um „heiðurssamkomulag“

Sjálfstæðismenn slitu í dag formlegum viðræðum við Framsóknarflokkinn í Hafnarfirði vegna trúnaðarbrests, sólarhring eftir að þær hófust, þar sem Framsókn hafi verið í viðræðum við Samfylkingu og Viðreisn án vitneskju Sjálfstæðisflokks. Oddviti Framsóknar segir það af og frá að einhverju hafi verið lofað í því samtali og segir koma á óvart að vera sakaður um óheilindi.Samstarfsflokkarnir Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru stærstir í Hafnarfirði eftir sveitarstjórnarkosningar, báðir með þrjá bæjarfulltrúa. Flokkarnir vildu láta reyna á áframhaldandi samstarf og funduðu því stíft strax á sunnudag og áfram á mánudag. Oddviti Framsóknar er núverandi bæjarstjóri.„Ég hafði nú lýst yfir áhuga á því að verða bæjarstjóri og ég tók það samtal við Valdimar [oddvita Framsóknar] og það endaði
Fer tvennum sögum um „heiðurssamkomulag“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd