VÆB seldu upp 11 tónleika á Evróputúr í upphafi ársins

„Þetta er bara búið að vera galið. Hvern einasta dag keyrsla,“ segir Matthías Davíð annar VÆB-bróðirinn um árið sem liðið hefur síðan þeir stigu á svið í Eurovision.Strákarnir hafa notið töluverðra vinsælda erlendis eftir þátttökuna en þeir slógu rækilega í gegn á samfélagsmiðlum. „Stærsti hlutinn af VÆB-fans eru ekki frá Íslandi. Á Spotify, núna, erum við með um 300.000 mánaðarlega hlustendur, það eru bara um 20.000 þeirra frá Íslandi,“ segir Hálfdán Helgi.Það varð því úr að strákarnir ákváðu að fara á Evróputúr sem gekk mjög vel, spiluðu 11 tónleika í 9 löndum og það seldist upp um allt. Borgirnar Helsinki og London stóðu upp úr, þar voru stærstu tónleikarnir og allir sungu með.Þú getur horft á áhugavert viðtal við bræðurna úr Miðstöðinni í spilaranum hér að ofan.
VÆB seldu upp 11 tónleika á Evróputúr í upphafi ársins
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd