Sprenging tók á móti forsetahjónunum

Rétt fyrir klukkan hálf ellefu í morgun, þegar forsetahjónin voru að koma á forsetabílnum Landveginn í Rangárþingi ytra, varð sprenging í malarnámu rétt við veginn, sem kallast Nónhamarinn, og þeyttist grjót út um allt og mikið ryk myndaðist.„Það er aldeilis tekið vel á móti manni með sprengingu hér í sveitinni,“ sagði Halla þegar hún steig út úr bílnum.Frú Halla og Björn byrjuðu á að heimsækja leikskólann, sem á 30 ára afmæli í dag. Börnin sungu nokkur lög og spurðu forsetann margra spurninga sem svarað var greiðlega. Yngstu krakkarnir gáfu líka Höllu blóm. Svo var farið út að gróðursetja hindberjaplöntur með elstu leikskólakrökkunum og gekk það vel.„Það er náttúrlega svo fallegt veðrið og svo held ég að ég hafi ekki fengið fallegra heimboð frá því að ég tók við embætti en börnin hérna bj
Sprenging tók á móti forsetahjónunum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd