„Þetta lag heyrist nú ekki oft í dag, en myndbandið er mjög eftirminnilegt,“ segir Stefán Hilmarsson, söngvari Sálarinnar hans Jóns míns sem var gestur í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar í umsjón Auðuns Blöndal. Myndbandið sem um ræðir er við lagið „Tár eru tær“ en þættirnir eru allir aðgengilegir í heild sinni á Sýn+.