Þrír af hverjum fjórum eiga erfiðleikum með að verða sér úti um vinnu, mat og heilbrigðisþjónustu í Afganistan. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum og aldrei hafa fleiri Afganar verið á barmi hungursneyðar eða um 4,7 milljónir.Ástandið er einna verst í Ghor-héraði, þangað komst fréttateymi BBC þrátt fyrir að það sé ekki auðvelt fyrir fjölmiðlafólk að komast inn í landið.BBC ræddi við fjölda fólks sem lýsir því að börn þeirra fari svöng í háttinn marga daga í röð og sífellt fleiri dæmi eru um að barnungar dætur séu seldar í hjónaband.Konur geta ekki lagt mikið af mörkum, talibanastjórnin hefur svo gott sem gert þær ósýnilegar í samfélaginu. Hlutfall kvenna sem hvorki er í námi né á vinnumarkaði er komið upp í 87 prósent. VÍSBENDINGAR UM AUKINN BARNADAUÐA Sameinuðu þjóðirnar segja að milljónir