Það eru erfiðir tímar fram undan í efnahagslífinu, að mati aðalhagfræðings Arion banka. Það þrengi að heimilum og fyrirtækjum og óvissa mikil. Stýrivextir standa nú í 7,75% og Seðlabankinn spáir 5,5 prósenta verðbólgu á síðasta ársfjórðingi þessa árs og er svartsýnni í sinni verðbólguspá en aðrir greiningaraðilar.Viðskiptabankarnir eru vanir að skila vaxtabreytingum, hvort sem þær eru til hækkunar eða lækkunar, inn í lánakjör viðskiptavina nokkuð fljótlega eftir að Seðlabankinn breytir stýrivöxtum. 0,25 punkta hækkun stýrivaxta í gær breytir vaxtakjörum bæði fyrir útlán og innlán á næstu dögum. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka segir Seðlabankann spá mikilli verðbólgu næstu mánuði. KÓLNUN KERFISINS LÉTTIR Á PRESSUNNI „Þau eru að spá 5,5% verðbólgu núna á síðasta árs