Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins í bæjarfélaginu, segir það hafa komið á óvart að vera ásakaður um trúnaðarbrest og óheilindi. Hann segir krefjandi stöðu komna upp varðandi meirihlutaviðræður í bænum en segir Framsóknarflokkinn enn tilbúinn til samstarfs og útiloka engan.