Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur undirrituðu málefnasáttmála nýs meirihluta í Reykjanesbæ í dag. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, tekur við af Kjartani Má Kjartanssyni sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokks, verður formaður bæjarráðs. Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tekur við sem forseti bæjarstjórnar.Í málefnasáttmálanum segir að samstarf flokkanna byggi á sameiginlegri sýn um öflugan, framsækinn og fjölskylduvænan Reykjanesbæ.Báðir flokkar voru með á stefnuskrá sinni að breyta þyrfti því hvernig staðið væri að móttöku hælisleitenda í sveitarfélagið. Vilhjálmur Árnason hefur sagt að setja þurfi skýr mörk í hælisleitendamálum í Reykjanesbæ. Gunnlaugur segir innviði bæjarins sprungna, Reykjanesbær hafi vegna þessa ek