Ken Howery, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, við vígslu nýs húsnæðis sendiskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk.EPA / Christian Klindt SoelbeckDonald Trump Bandaríkjaforseti ætlar ekki að beita valdi til að taka yfir Grænland. Þetta sagði Ken Howeri sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku í samtali við grænlenska sjónvarpið við vígslu nýs húsnæðis sendiskrifstofunnar í Nuuk í dag.„Forsetinn hefur slegið það út af borðinu að beita valdi. Framtíð Grænlands á að ákveða af Grænlendingum,“ sagði hann. Trump sjálfur hefur hingað til ekki viljað útiloka valdbeitingu.Hann hrósaði einnig Grænlendingum og sagði að þeir og Bandaríkjamenn yrðu alltaf nágrannar, sama hvernig framtíð þeir velja sér.