Stórfellt gáleysi Tómasar Guðbjartssonar skurðlæknis leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til tjóns og andláts Erítrumannsins Andemariams Beyene árið 2014, tæpum þremur árum eftir að plastbarki var græddur í hann.Með því að greiða veginn fyrir því að sjúklingur í viðkvæmri stöðu væri notaður í „stórhættulega tilraun, sem skorti allan vísindalegan og lagalegan ramma“ braut Tómas gegn dýpsta grunni læknisstarfsins – að valda fyrst og fremst ekki skaða.Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjölskyldu Andemariams gegn íslenska ríkinu. Þar segir að Tómas hafi gerst uppvís um „stórfellt gáleysi“ í máli Andemariams og brotið alvarlega gegn þágildandi læknalögum.Í dómnum var ríkið dæmt bótaskylt vegna saknæmrar háttsemi Tómasar í málinu. VILDU BÆTUR VEGNA PLASTBARKAAÐGERÐAR