Sjálfstæðismenn ráða ráðum sínum

Nýkjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur funda í dag með Hildi Björnsdóttur, oddvita flokksins. Til stendur að ræða þau samtöl sem Hildur hefur átt síðastliðna daga.Hildur segist ekki hafa gert upp hug sinn um neinn óskameirihluta. Hún segir þó að samtöl seinustu daga hafi hjálpað.„En það hafa auðvitað komið ákveðin sjónarmið á borðið síðustu daga sem geta haft áhrif á niðurstöðuna.“ MYNDAR EKKI MEIRIHLUTA Í DAG Á fundinum ætlar Hildur að ræða ákveðin sjónarmið, sem geta ráðið för í meirihlutamyndun, við hópinn.Ef þeim hugnast það vel, heldurðu þá að það muni bara hilla undir nýjan meirihluta í borginni jafnvel í dag?„Það gerist ekki í dag.“Þau samtöl sem eiga sér stað á fundinum í dag segist Hildur ætla að taka með sér inn í næstu umræður við oddvita. Hún seg
Sjálfstæðismenn ráða ráðum sínum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd