Ebólufaraldurinn sem átti upptök sín í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó breiðist hratt út og hefur nú greinst í fjölmennum borgun bæði þar og í Úganda. Sérfræðingar sem hafa rætt við New York Times telja að hröð útbreiðsla og það hversu seint sjúkdómurinn uppgötvaðist sé bein afleiðing þess að stjórnvöld í Bandaríkjunum lokuðu USAID.Í gegnum þessa stofnun starfræktu stjórnvöld í Bandaríkjunum lengi öflugt sjúkdómaeftirlit víða í austanverðri Afríku. Á vegum USAID voru einnig læknateymi til staðar þegar heilsufarsógnir áttu sér stað. Stórum hluta þessa starfs lauk með lokun USAID í fyrra. Þá hvarf einnig á brott fjöldi sérfræðinga sem starfaði í þessum landshluta, þar á meðal í Kongó. Yfirvöld þar hafa treyst á Bandaríkjamenn með flutninga og birgðir þegar slíkir faraldrar hafa geisað áður. BA