Karólína Einars Maríudóttir skrifar:Plata vikunnar að þessu sinni er samansafn laga sem voru samin sérstaklega fyrir þættina 20 og eitthvað. Þættirnir 20 og eitthvað voru frumsýndir á RÚV 17. apríl 2026 og plata samnefnd þáttunum kemur út þegar síðasti þátturinn fer í loftið. Verkið var í höndum hljómsveitarinnar FLOTT en hana skipa Ragnhildur Veigarsdóttir, pródúsent, lagasmiður og hljómborðsleikari og Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, laga- og textasmiður ásamt handritshöfundunum og leikurunum Arnóri Björnssyni og Óla Gunnari Gunnarssyni. Um hljóðblöndun sá Elvar Smári. FLOTT hefur farið um víðan völl, unnið til verðlauna og hefur orð á sér fyrir hnyttna textagerð og. Sveitin hefur komið reglulega fram í sjónvarpi allt frá stofnun í ársbyrjun 2020. Síðasta breiðskífa, Pottþétt FLOTT, kom ú