Fimm milljarða hagnaður Síldarvinnslunnar á fyrsta fjórðungi

Síldarvinnslan hagnaðist um 35,1 milljón evra, sem nemur 5,1 milljarði íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 6,9 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu. RÚV / Rúnar Snær ReynissonRekstrartekjur félagsins námu 113,6 milljónum evra, eða 16,5 milljörðum króna, og jukust um tæp 45% milli ára.Tekjur fyrir vexti, skatta og afskriftir voru rúmar 46 milljónir evra, 6,7 milljarðar króna.Félagið segir góða loðnuvertíð eftir tvö erfið ár hafa vegið þungt, auk þess sem framleiðsla loðnuafurða hafi verið mikil.
Fimm milljarða hagnaður Síldarvinnslunnar á fyrsta fjórðungi
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd