Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður manns sem brenndist illa eftir afskipti lögreglu í Keflavík í vikunni, gagnrýnir framferði lögreglu harðlega. Hann segir lögreglu hafa gerst seka um vítaverð afglöp, meðal annars með því að eyða myndbandi af atvikinu.Umbjóðandi Vilhjálms brenndist illa eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ á mánudag. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Noregs með alvarleg brunasár um allan líkamann til frekari aðhlynningar. Rafvopni var beitt í aðgerðunum og héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á atvikinu.„Það er auðvitað hlutverk lögreglu að slökkva elda en ekki kveikja þá og afla sönnunargagna en ekki eyða þeim,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins.„Það sem er algjörlega óumdeilt er það að umbjóðandi minn var þarna á nærfötunum og var búinn að skvetta y