Garðabær.Aðsent / GarðabærLögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tilkynningu um mann að stela á veitingahúsi í Garðabæ á laugardagskvöld. Tilkynnandi taldi manninn vera vopnaðan hnífi og ákveðið var að áhöfn eins lögreglubíls af fjórum, sem sinntu útkallinu, skyldi vopnast.Þetta staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Hann segir tilkynningin hafi borist um klukkan átta á föstudagskvöld, og 10 mínútum síðar hafi verið búið að tryggja aðilann. Skúli segir að enginn hnífur hafi fundist á manninum og málinu hafi verið afgreitt á vettvangi.