Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, segist vera miður sín að vera ásakaður um trúnaðarbrest. „Það kemur mjög á óvart að vera sakaður um óheilindi,“ segir hann.Hann kveðst ekki útiloka samstarf við neinn eftir vendingar dagsins.„Það er fullt traust áfram hjá okkur til allra aðila.“ ÁSAKANIR UM TRÚNAÐARBREST OG SVIK Í dag tilkynntu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði að þeir hefðu slitið viðræðum við Framsókn um áframhaldandi meirihlutasamstarf. Ástæðuna sögðu þeir vera alvarlegan trúnaðarbrest. Framsókn hefði handsalað samkomulag um meirihlutasamstarf við aðra flokka en þá.Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að flokknum hugnist ekki heldur samstarf við Framsókn vegna svika. „Framsókn var þarna með tvo skildi á lofti.“Valdi