Málefnasamningur nýs bæjarstjórnarmeirihluta var kynntur á Akureyri í dag en að honum standa Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og L-listinn. Í fyrsta sinn í síðan 2010 mun bæjarstjóri Akureyrar koma úr röðum kjörinna fulltrúa. Berglind Ósk Guðmundsdóttir mun gegna embætti bæjarstjóra næstu fjögur árin:„Þetta er skref inn í framtíðina og við sjáum bara mikil tækifæri til þess að koma okkar stefnumálum á framfæri með skýrum og afdráttarlausum í gegnum þetta hlutverk og við gerum það saman og í samvinnu,“ sagði Berglind Ósk, oddviti Sjálfstæðisflokksins og verðandi bæjarstjóri. „ÉG HELD AÐ BERGLIND SÉ BARA MJÖG FLOTTUR KANDÍDAT“ Óðinn Svan Óðinsson verður formaður bæjarráðs á Akureyri næstu fjögur árin. L-listinn er að hefja sitt fimmta kjörtímabil í meirihluta:„Við vorum bara sa