Aldrei hefur verið jafn dýrt að vera til á Íslandi, samkvæmt greiningu Visku - stærsta aðildarfélags Bandalags háskólamanna sem birt var í morgun. Síðustu þrjá áratugi hefur munur á verði á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum verið rúm 40 prósent að jafnaði - en mælist nú tvöfalt meiri. Hér má lesa nánar um greininguna. Í samanburði við önnur Norðurlönd er matvara hér mun dýrari - munurinn er rúm 70 prósent á kjötvörum og enn meiri á mjólkurvörum og eggjum.Þá er verðlag á veitingastöðum og gististöðum nærri þriðjungi hærra hér en annars staðar á Norðurlöndum. Fram kemur í greiningunni að hærri laun á Íslandi skýri ekki allan verðmuninn - því hann sé orðinn tvöfaldur á við launamuninn.Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að þó að hráar launatölur hér teljist háar,