Tyrkneskur blaðamaður þýska fjölmiðilsins Deutsche Welle var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Ankara höfuðborg Tyrklands í dag fyrir að móðga Erdogan, forseta landsins og dreifa „fölskum fréttum“ á samfélagsmiðlinum X. Réttarhöld hófust í morgun yfir Alican Uludag, sem var handtekinn á heimili sínu í borginni í febrúar. Klukkustund eftir að réttarhöldin hófust úrskurðaði dómarinn að honum yrði sleppt á skilorði og réttarhöldum frestað.Þýsk stjórnvöld segja ásakanir gegn blaðamanninum tilhæfulausar og Amnesty International hafði krafist lausnar hans.Uludag segist sjálfur ekkert hafa gert af sér. Hann sé blaðamaður sem þaggað sé niður í. Hann hefur verið blaðamaður í dómsmálum í átján ár og í störfum sínum gagnrýnt ýmislegt í samskiptum réttarkerfisins og stjórnmála í landinu.Samtökin Blað