Flugfélagið Air France og flugvélaframleiðandinn Airbus voru í dag sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir áfrýjunardómstóli í París. Dómurinn telur fyrirtækin að fullu ábyrg fyrir því að farþegaflugvél hrapaði í Atlantshafið í byrjun júní 2009. Allir 228 sem voru um borð fórust. Þetta er enn í dag mannskæðasta flugatvik í sögu Frakklands. Undirréttur hafði áður sýknað bæði fyrirtækin.Flugvélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar þegar flugmennirnir misstu stjórn á vélinni og hún hrapaði í sjóinn. Flestir í vélinni voru frá Frakklandi og Brasilíu en alls var fólk af 33 þjóðernum um borð.Við athugun kom í ljós að ástæðan hafi verið sú að leiðslur sem mæla flughraðann hafi stíflast vegna ísingar. Við það kviknaði á viðvörunarkerfi vélarinnar. Flugmennirnir reyndu að hækka f