Greiðslumiðlunarkerfin komin í lag

Frá Strikinu í Kaupmannahöfn.RÚV / Hallgrímur IndriðasonGreiðslumiðlunarkerfi Nets í Danmörku eru komin í lag og því ganga kortaviðskipti nú eðlilega hjá dönskum korthöfum.Bilunin stóð í nokkra tíma. Í yfirlýsingu frá Nets kemur fram að innri bilun hafi komið upp í kerfinu, sem er annað orð yfir að þetta hafi ekki verið netárás. Of snemmt sé þó að segja til um nákvæma orsök. Fyrirtækið hefur beðið viðskiptavini sína afsökunar. Verið sé að greina bilunina til að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur.Bilunin stóð í yfir fimm klukkustundir.
Greiðslumiðlunarkerfin komin í lag
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd