Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður sett á Patreksfirði annað kvöld. Þetta er í 19. sinn sem hátíðin er haldin. Í ár keppa fimm íslenskar heimildarmyndir í fullri lengd og fimm stuttar heimildarmyndir til verðlauna. Að auki verður boðið upp á fjölda viðburða, þar á meðal kvikmyndir heiðursgesta hátíðarinnar sem koma frá Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu.„Þetta er skemmtilegasta hátíðin, allavega skemmtilegasta heimildarmyndahátíðin – og eina,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir stjórnandi Skjaldborgarhátíðarinnar. „Hún er svolítið svona vorboðinn, vorið er komið og sumarið er handan við hornið þegar hún byrjar,“ bætir Kristín við en Skjaldborg er iðulega haldin um hvítasunnuhelgina. GÓÐUR KJARNI SÆKIR HÁTÍÐINA ÁR EFTIR ÁR „Þetta er í rauninni orðin hálfgerð ársh