Hildur metur stöðuna með borgarstjórnarflokki sínum í dag

Það dregur mögulega til tíðinda í myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í dag.Nú fyrir hádegi var borgarráðsfundur í Ráðhúsinu og Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur setið þann fund í morgun.Síðar í dag boðar hún, samkvæmt heimildum fréttastofu, borgarstjórnarflokkinn sinn á sinn fund. Sá hópur hefur ekki fundað formlega í heild sinni síðan á sunnudag en miklar þreifingar varðandi meirihlutasamstarf hafa átt sér stað í millitíðinni. Á þessum fundi reynir Hildur eflaust að átta sig betur á því hvaða stemmning er í hópnum fyrir þeirri meirihlutamyndun sem hún vill láta reyna á. Slagorð sjáflstæðismanna í þessum kosningum var Strax-D svo hún vill eflaust hafa nokkuð hraðar hendur við þetta allt saman en þó taka vel ígrundaðar ákvarðanir í samráði við sitt fó
Hildur metur stöðuna með borgarstjórnarflokki sínum í dag
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd