Allt frá ilmandi sígaretturokki yfir í ljúfa bakgrunnstóna

SKRATTAR ÁSAMT BANG GANG – STRESSED Hljómsveitin Skrattar gaf út lagið Stressed 14. maí í samstarfi við Barða Jóhannsson, sem er betur þekktur sem Bang Gang. Þar má segja að Skrattar hafi hitt ömmu sína í samruna þessara ólíku afla í íslensku tónlistarlífi en lagið fjallar um Reykjavík eins og hún er í raun þegar myrkur er skollið á. BJARNI DANÍEL – DÍSEL Tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel hefur sent frá sér fyrstu smáskífuna af væntanlegri sólóplötu sinni sem kemur út í sumar. Lagið kemur út á föstudaginn og heitir Dísel og fjallar um ást, ástarsorg, eirðarleysi og óljósa hugmynd um frelsi. MELCHIOR – KÚADELLUSLAMM Hljómsveitin Melchior hefur sent frá sér lagið Kúadelluslamm sem er fyrsta lagið sem kynnt er af nýrri 12 laga plötunni Ljós í skóm, sem kemur út 5. júní. Lagið Kúadellusla
Allt frá ilmandi sígaretturokki yfir í ljúfa bakgrunnstóna
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd