Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu í Landsrétti öðru sinni

Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fer fram í Landsrétti í dag, öðru sinni. Landsréttur sýknaði í fyrra þá Sindra Snæ Birgisson og Ísidór Nathansson af tilraun til hryðjuverks og aðild að tilraun til hryðjuverks, en sakfelldi þá fyrir brot á vopnalögum. Hæstiréttur taldi verulega annmarka á dómi Landsréttar og gerði honum að taka málið fyrir aftur.Skýrslur voru teknar af báðum ákærðu við upphaf aðalmeðferðar í morgun. Eðli málsins samkvæmt var ekki margt sem átti eftir að fara yfir, því þeir gáfu báðir ítarlega skýrslu fyrir héraðsdómi og svo Landsrétti í fyrri aðalmeðferð.Í skýrslutökum fyrir Landsrétti í dag voru Sindri og Ísidór spurðir út í nokkra þætti ákærunnar, aðallega um samskipti sín á milli. Í flestum tilvikum kváðust þeir ekki muna vel eftir samskiptunum, enda væri liðinn langur t
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu í Landsrétti öðru sinni
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd