Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík mun boða  borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun.
Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd