Greiðslukortakerfi liggja niðri í Danmörku

Stór hluti Dana hefur átt í erfiðleikum með að nota greiðslukort sín í morgun vegna alvarlegrar bilunar hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Nets. Bilunin hefur mikil áhrif hjá Dönum bæði í heimalandinu og erlendis sem margir hverjir geta ekki greitt fyrir vöru og þjónustu.Danskir fjölmiðlar hafa meðal annars sagt frá bílum sem sitja fastir í bílakjallara og fólki sem hefur misst af flugi eða er fast á flugvöllum erlendis vegna bilunarinnar. Einnig er farið að bera á vandræðum í Svíþjóð og Noregi.Net hefur beðið verslanir um að virkja netlausar leiðir til að taka á móti greiðslum. Það heldur meðal annars viðskiptum opnum hjá stærstu matvöruverslanakeðjunum. Þá geti komið sér vel að vera með kortið sjálft meðferðis, ekki bara kortið í farsímanum. Fyrirtækið segist hafa fundið orsök bilunarinnar
Greiðslukortakerfi liggja niðri í Danmörku
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd