Slíta meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði – segja Framsókn hafa rætt við aðra

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um áframhald á meirihlutasamstarfi í bænum og vísa til „alvarlegs trúnaðarbrests“.Í tilkynningu segir að eftir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn handsöluðu samkomulag um viðræður um áframhaldandi meirihlutasamstarf hafi komið í ljós að Framsóknarflokkurinn hafði handsalað sambærilegt samkomulag við aðra flokka í bænum.Það sé því ljóst að grundvöllur meirihlutasamstarfs flokkanna sé ekki lengur fyrir hendi.Sjálfstæðismenn segja ljóst að flókið verði að mynda meirihluta í bænum við þessar aðstæður og mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa að vanda til verka.„Sú ábyrgð hvílir á bæjarfulltrúum að mynda starfhæfan meirihluta í bænum þar sem meginmálefnin eru að tryggja traustan rekstur og áframhaldand
Slíta meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði – segja Framsókn hafa rætt við aðra
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd