Helga Jóhannsdóttir verður rektor MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað nýjan rektor Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst. Helga Jóhannsdóttir var valin úr hópi fimm umsækjenda.Helga hefur starfað við MH í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og settur rektor. Hún hefur B.S. gráðu frá Háskóla Íslands í tölvunarfræði og kennsluréttindi frá sama skóla. Auk þess er hún með diplómur í stærðfræði fyrir stærðfræðikennara og í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.Menntaskólinn við Hamrahlíð.RÚV / Alexander Kristjánsson
Helga Jóhannsdóttir verður rektor MH
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd