Finnur Yngvi hættir sem sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit

Finnur Yngvi Kristinsson hættir sem sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar eftir 8 ár í starfi. Finnur Yngvi hefur verið ráðinn og ópólitískur sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit frá því í september 2018. Í samtali við fréttastofu sagði Finnur að hann hefði tilkynnt sveitarstjórninni um ákvörðun sína í janúar og að ástæðan væri sú að það væri góður tími til þess að breyta til og að hann og fjölskylda hans væru að flytjast búferlum suður yfir heiðar.Nýtt starf sveitarstjóra var auglýst í morgun á vef Eyjafjarðarsveitar með umsóknarfresti til 1. júní.Finnur Yngvi er sveitarstjóri í EyjafjarðarsveitRÚV / Ragnar Visage
Finnur Yngvi hættir sem sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd