Fleiri seljendur lækka verð á íbúðum

Fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir og seljendum sem lækka ásett verð á íbúðum sínum hefur fjölgað, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS). Erfiðara er að selja dýrar íbúðir en ódýrari. Verst gengur að selja íbúðir í fjölbýli sem eru stærri en 120 fermetrar. Fólk hefur fært sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum í auknum mæli.Í skýrslunni kemur fram að fleiri leigjendur búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað en áður. Markaðsleiga hefur hækkað umfram lægstu laun frá 2014.
Fleiri seljendur lækka verð á íbúðum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd