Yfirvöld hefja rannsókn á meintum leyniskyttum í Sarajevo

Yfirvöld í Austurríki hafa hafið rannsókn á tveimur einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa greitt háar fjárhæðir fyrir að skjóta fólk í svokölluðum leyniskyttuveiðiferðum í Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu þegar borgin var umsetin frá 1992-1996. Dagblaðið The Times greinir frá því að rannsóknin beinist að einstaklingi sem sé austurrískur ríkisborgari og öðrum, hvers þjóðerni hefur ekki verið gefið upp.Bosníu-Serbar sátu um borgina í stríðinu og leyniskyttur héldu til í hæðunum fyrir ofan borgina og skutu á almenna borgara; menn, konur og börn. Um 14.000 almennir borgarar voru drepnir í umsátrinu um Sarajevó. Leyniskyttuveiðiferðirnar voru skipulagðar af Króötum og Serbum og þeir sem tóku þátt greiddu aukalega fyrir að skjóta barnshafandi konur og börn. ENN ERU AÐ KOMA FRAM NÝJAR UPPLÝSIN
Yfirvöld hefja rannsókn á meintum leyniskyttum í Sarajevo
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd