Þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, birti myndskeið á samfélagsmiðlinum X í gær sem sýndi tugi aðgerðarsinna beitta harðræði. Fólkið var neytt til liggja á hnjánum með hendur bundnar og höfuð niður í gólfi. Myndskeiðið var birt með textanum „Velkomin til Ísrael“og á einum stað heyrðist þjóðsöngur Ísraels í bakgrunni.Myndskeiðið vakti hörð viðbrögð víða um heim og fjölmargir þjóðarleiðtogar fordæmdu myndskeiðið og meðferðina á aðgerðarsinnunum. Þá gagnrýndi forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, þjóðaröryggisráðherrann og sagði að meðferðin á aðgerðarsinnum væri ekki í takt við gildi og hefðir Ísraels og stjórnvöld myndu sleppa aðgerðarsinnunum eins fljótt og auðið væri.Frönsk og belgísk stjórnvöld hafa kallað ísraelska sendiherra til fundar vegna málsins. Mark Carney for